26júlí

Ný síđa!!!

blz.bloggar.is

Byrjo, Liah, Zondrey
26. júlí 2006 klukkan 21:28
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
2 athugasemdir
03júlí

Útilega!!

Jebb, var að koma úr útilegu Glottandi

Fórum í gær, eftir mikið bras við að komast af Glottandi Byrjuðum á því að ná í Thomas, kærastann hennar Léu, en hann var að koma með rútunni frá Reykjavík, og svo var það bara næstum því beint, svona um það bil beint á ská af stað Hlæjandi

Fórum á bílnum hans Sigga, takk fyrir lánið Siggi Glottandi, enda ekki annað hægt en að fara á station bíl, vorum með tjald, gamalt, geggjað flott grænt og appelsínugult tjald sem foreldrar Bergþóru eiga, svefnpoka, dýnur og annan nauðsynlegan viðlegubúnað auk þess að hafa með okkur hund Hlæjandi Ég og Steini vorum nefnilega að passa Týru um helgina, og fékk hún þess vegna að koma memm Brosandi

Svo var keyrt út úr bænum, stoppað hjá Goðafossi og teknar nokkrar túrista myndir, ekki annað hægt Brosandi Eftir stoppið þar, héldum við svo áfram, þar sem að áfangastaður okkar var Mývatnssveitin! Stoppuðum á Hótel Reykjahlíð, horfðum á Bra-Fra leikinn, glæsilegur sigur Frakka þar! Léa alveg að fara yfirum eftir það Glottandi Enda svo sem skiljanlegt, við hefðum gert það sama ef að þetta hefði verið Ísland (og ef að íslenska landsliðið gæti eitthvað í fótbolta Hlæjandi)

Keyrðum svo á tjaldsvæðið hjá Reynihlíð, tjölduðum þar upp á hæð, gekk reyndar hálf brösuglega, og alveg milljón og þrjúhundruð flugur sem voru að bögga okkur, en það var allt í lagi vegna þess að við höfðum verslað okkur þessi öndvegis flugnanet í Reykjahlíð Svalur Vorum ekkert smá töff!

Eftir nokkuð bras með tjaldið var svo komið að því að grilla, og Léa tók það að sér, gekk alveg voða vel, fyrir utan nokkra byrjunarörðuglega með kjötið Hlæjandi Svo voru þrjár pylsur eftir þegar að allir voru búnir að borða fylli sína, og átti að geyma þær þar til síðar um kvöldið.. Þar sem að hann Steini á það til að vakna og borða á kvöldin/nóttunni... En það vildi nú ekki betur til en það að Týra kom röltandi inn í fortjald og barasta át pylsurnar! Hlæjandi Steini ekki sáttur með það!

Svo sátum við og spjölluðum smá, og barasta sofnuðum! Höldum því fram að við vorum svona þreytt eftir að reyna að koma tjaldinu upp Ullandi

Svo var drifið sig á fætur um hálf 11 í morgun, staðgóður morgunmatur, snúðar og soðið brauð frá ömmu lóu og flögur Óákveðinn Virkilega staðgott!

Svo var brummað af stað og farið í jarðböðin.. virkilega notalegt.. þó voru nokkrir afburða óheillandi þýskir túristar þar..  og svo var náttla gaurinn í sebrasundskýlunni, það barasta lak af honum kynþokkin!! Óákveðinn

Eftir það var keyrt áleiðis að víti og það skoðað, Týra fékk að fara með þar, var virkilega spennt yfir þessu öllu saman!
Einnig var farið að blubb blubb-unum, sem ég man ekki alveg hvað heita Skömmustulegur virkilega áhugvert, grjótagjá, dimmuborgir.. Allt skoðað Glottandi Virkilega gaman!

Ferðin endaði svo á því að við fórum saman í jólagarðinn og keyptum karamellur Brosandi

En já krakkar mínir, takk fyrir skemmtilega ferð!

Klemmi biður að heilsa í bili Svalur
03. júlí 2006 klukkan 01:32
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
10 athugasemdir
28júní

Jebb

Blogg


Klemmi, ekki í stuði fyrir svoleiðis...Fýldur
28. júní 2006 klukkan 01:34
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
3 athugasemdir
20júní

Langt síđan síđast!

Já, það verður bara að viðurkennast að ég hef bara ekki haft tíma til að blogga undanfarið..

Allar þessar örfáu mínútur sem ég hef verið í tölvunni hafa farið í tölvuleik á leikjanet.is... Á að reyna að ná einhverjum gullhjörtum og fá stig og svona, veit ekki af hverju, en ég er alveg húkkt á þessum leik! Held að hann heiti Valentiner... endilega kíkiði á hann við tækifæri Glottandi

Annars er nú ekki mikið að frétta...

Ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa Roger Waters tónleikunum.. held einfaldlega að það séu ekki til nógu stór orð fyrir það!

Léa er svo komin til Íslands, tókum hana og Viktor með frá Keflavík þegar við fórum norður aftur eftir tónleikana..

Eyrún útskrifaððist síðasta sunnudag ásamt helling af öðru fólki úr MA, til hamingju með það allir saman Glottandi

Svo er maður bara búinn að vera í vinnunni og synda... Var reyndar að komast að því að ég fæ ekki að fara með á bikar, þannig að ég gæti alveg eins sleppt því að synda, en ég ætla ekki að láta þennan kall halda að ég ætli að hætta! Þannig að það er bara um að gera að synda bara betur og láta hann sjá hvað ég get Svalur

Þannig að ég er farin á æfingu !!

Klemmi, getur allt!


20. júní 2006 klukkan 22:28
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
3 athugasemdir
08júní

Mánudagurinn...

næsti, verður án efa frábær!!!

Sökum þess að minn er að fara á Roger Waters! Svalur yeah! Hef ekki hætt að brosa í allan dag! Brosandi  Jeminn hvað ég hlakka til!! Get varla beðið! En neyðist líklega til þess samt Ullandi

Annars var þetta bara svona um það bil allt sem ég hafði ykkur að segja, langaði bara að deila þessu með ykkur Glottandi

Klemmi, gæti varla verið ánægðari!
08. júní 2006 klukkan 03:10
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
11 athugasemdir
07júní

Gaman já!!

Góðan daginn góðir hálsar!!

Fínasta fínt að frétta hér, ligg upp í rúmi og er að horfa á Bubba tónleikana
Svalur Alveg öndvegis það Glottandi yeah!

Og fyrst að tilfinningatáknin og línubilið er komið, þá er alveg spurning hvort að litirnir séu ekki að fara að láta sjá sig Ullandi

Það væri nú alveg öndvegis!

En já.. Svenni litli frændi á afmæli á morgun, verður eins árs kallinn!
Hissa Mér finnst svo stutt síðan hann fæddist! Til hamingju með það litli minn Koss

Síðasta helgi... hún var nú ansi skemmtileg..

- Rafvalsgrill á föstudag og innflutningspartý hjá Gylfa...
- Laugardagur... væflaðist bara fram eftir degi með sjálfri mér... skrapp til Bergþóru á Glerártorg... Fór svo á æfingu, hitti svo Bergþóru, við kíktum í ljós og pottinn og svo á Greifana.. Hittum Jósa mjög hressan...
Hlæjandi Kvöldið endaði svo á því að ég og Steini, Arna og Jósi fórum heim til þeirra og vígðum grillið sem hann fékk í útskriftargjöf.. Mjög gaman það!
- Sunnudagur, Ferming hjá Margréti Ósk og tilheyrandi veisla með
Glottandi og svo um kvöldið var það Palli.. mjög gaman!!
- Mánudagur.. Ákvað að vera góð og hjálpa pabba mínum að vinna á Dalvík.. Mjög góður dagur það Hlæjandi

Og svo var það bara vinna í dag og á morgun og út þessa viku.. svo fer að koma sjómannadagur, og afmæli hjá Sigrúnu næstu helgi.. það verður án efa gaman Glottandi

En annars bið ég bara að heilsa í bili

Klemmi
07. júní 2006 klukkan 02:02
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
1 athugasemd
02júní

Línubil já!!!

Alltaf sama stóra spurningin... kemur línubilið eða ekk?!?! vúúú!!! spennandi.. Svalur

Held að þetta sé í fyrsta sinn sem mér tekst að setja inn svona tilfinningatákn.. Hissa yeah!

Þá er spurning um hvort að þetta verði blátt á litinn eins og ég valdi?? Ef það er svo, þá er þetta bara allt að koma Ullandi

En allavegana er bara allt saman fínt að frétta á þessum bænum, ligg hérna uppi í rúmi og er að horfa á csi miami með öðru auganu og nota svo hitt til að reyna að skrifa rétt Glottandi

Fór á æfingu í dag, var að reyna að tala við Vlad, og ég held að mér hafi tekist að gera mig skiljanlega um að ég get bara einfaldlega ekki mætt á æfingu klukkan 3 á morgun vegna þess að ég þarf að vinna, heldur þyrfti ég að fá að synda klukkan 5... Hann ætlaði að tala við Svetlönu og tékka á þessu ;)

Annars voru ég og Andrea alveg að meika það á æfingunni í dag, aðalega í rólega sundinu og svo rétt aðeins eftir æfinguna.. Skemmtilegt hvað maður sér laugina allt öðruvísi ef maður horfir á hana á hvolfi... Mjög skemmtilegt það Ullandi

Svo eru krakkarnir að fara á ía-esso.. mig langar með.. en ég kemst ekki.. Óákveðinn Virkilega svekkjandi það... Fæ bara að fara með á bikar eða eitthvað í staðin Glottandi

Ég held samt að ég hafi ekki meira til að ausa yfir ykkur í bili..

Klemmi, í sólskinskapi og rigningu Hlæjandi
02. júní 2006 klukkan 03:10
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
3 athugasemdir
31maí

Vúbdídúdí ;)

Jæja, þá er ég komin í tölvuna hans Steina og því verður bara að koma í ljós hvort að það komi línubil eða ekki... Verð að biðja ykkur að sýna því þolinmæði ef að þau koma ekki... :pEn annars er bara fínt að frétta.. Var að koma af æfingu, var virkilega farin að halda undir það síðasta að ég myndi virkilega farast mér var svo illt í höndunum! Var farin að leita að þeim þarna í lokin fljótandi í lauginni :p Settið sem við vorum að synda var 4x100 aðalasund og svo 6x150 skrið.. Var ekki alveg að meika skriðið :p En það er nú bara gaman svona annað slagið ;)  Síðasta sunnudag, sem sagt í fyrradag.. :p Skrapp ég svo til Dalvíkur og náði í systkini mín, tók þau svo með í bæinn.. Við fórum í sund og busluðum þar í góða 2 tíma, fórum svo í Kjarnaskóg og fórum að leika okkur, eftir það var svo komið við á Subway, menn orðnir virkilega svangir á þeim tímapunkti! Svo lékum við okkur aðeins meira og brummuðum svo heim á leið.. Ekki laust við að það væri komin einhver þreyta í mannskapinn ;) Ekki furða eftir að vera búin að vera á útopnu allan daginn :pAnnars held ég að ég hafi ekki mikið meira að segja í bili, þannig að ég bið bara að heilsa ykkur í bili ;)Klemmi, Voða voða...
31. maí 2006 klukkan 01:50
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
4 athugasemdir
27maí

Jíha!!

Þá er það afstaðið, ég er búin að fara og merkja eitt lítið X á blað við hlið þess flokks sem ég vildi kjósa, búin að fara í kosningakaffi og borða kökur...

Einnig er ég búin að fara á æfingu, sem var hreint út sagt geggjuð, bætti um sek 400 skrið ;) Ekki slæmt það :p Virkilega langt síðan mér hefur tekist að bæta mig í einhverjuj.. Alltaf gaman þegar það gerist.. Var líka í fyrsta skipti sem allir klára æfinguna síðan að Karen gerðist aðstoðarþjálfari, sem var einhvern tíma í janúar eða eitthvað, meira að segja Brynjar og Jóhann og kláruðu ;) Allt að gerast!!!

Svo er bara spurningin, koma línubil eða ekki í þessari færslu??? :o alveg merkilegt þetta.. Það bara virðist ekki virka að ýta á "enter" ekki heldur á "shift og enter"...

En annars vil ég bara biðja ykkur vel að lifa...

Klemmi ;)
27. maí 2006 klukkan 19:38
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
8 athugasemdir
27maí

Geggjad!!

Eda ekki... Af einhverjum oskiljanlegum astaedum vil tessi omurlega talva (talvan hans Steina) ekki lata gera islenska stafi a ser eins og er.. Tannig ad tid verdid bara ad lifa med tvi ad lsa tetta svona nuna ;)Tad er buid ad vera geggjad vedur i dag (allir sannir islendingar turfa ad tala um vedri :p), sol og hlytt, agaetis tilbreyting fra snjokomunni og ogedinu!! Tad var nu ekki skemmtilegur timi! En ad odru, kosningar a morgun... Eg er longu buin ad gera upp hug minn, tannig ad min mal eru a hreinu.. En hinir ymsu flokkar hafa to beitt ymsum bellibrogdum til ad na atkvaedi minu, senda mer post og bjoda mer a hinar og tessar skemmtanir... Annars vil eg bara bidja ykkur vel ad lifa og kjosa samkvaemt ykkar samvisku a morgun ;)Klemmi i sumarskapi!P.s. djofulsins drasl! Tad vilja ekki koma bil a milli lina sama hvad eg geri!!!
27. maí 2006 klukkan 00:26
Sandra Dögg Guđmundsdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Könnun

Hvernig lýst ykkur svo á ţetta??

Gagnasafn

Leit